BMW K1300S er með bestu ABS bremsurnar ef marka má próf sem MCN blaðið hélt á dögunum með nokkrum helstu tegundum hjóla sem seld eru með þessum búnaði. Meðal annarra hjóla í prófun voru BMW S1000RR, Honda Fireblade, Yamaha XJ6 og Harley Electra Glide. Það voru svo BMW og Honda hjólin sem stóðu upp úr við prófunina, en til viðmiðunar var prófað að bremsa á Honda Civic dísilbíl í prófinu. Skemmst er frá að segja að BMW K1300S vann meira að segja bílinn í prófuninni, stoppaði á 4,8 metra styttri vegalengd úr 100 km hraða sem er ansi merkilegt þegar það er haft í huga að bíllinn er með fjögur hjól og mun stærri snertiflöt dekkja við malbikið. Prófunaraðilarnir þökkuðu einnig hönnun BMW hjólsins fyrir þessa góðu útkomu, en grindin er lág og löng og að framan er hin svokallaða Duolever fjöðrun.





