Póstlisti
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá

 

 

Michelin Shirac

Alhliða ferðahjóla dekk með munstri sem hentar grófari vegum betur en malbiki.

Mjög rásfast á malarvegi og með mjög góðu gripi við erfiðar aðstæður.

Mæli með þessu dekki fyrir þá sem leggja áherslu á endingu og gott grip á grófum vegi.

Fást hjá N1 og Dekkjalagernum

  


 

Michelin Anakee

Silica blandað alhliða ferðahjóladekk með gríðarlega góðu gripi á jafnt blautu sem þurru malbiki.

Þokkalega rásfast á malarvegi og með ásættanlegu gripi við erfiðar aðstæður.

Anakee er mjög vel heppnað dekk með virkilega góða endingu.

Ég mæli með þessu dekki fyrir þá sem leggja áherslu á malbiksakstur en vilja hafa valið að fara yfir hálendið og komast léttari slóða.

 Fást hjá N1 og Dekkjalagernum

 


 

Bridgestone Battlewing

 

Kemur sem orginal á flestum gerðum BMW GS hjóla, þetta er mjög vel heppnað dekk fyrir akstur á malbiki jafnt blautu sem þurru.

Þokkalega rásfast á góðum malarvegi, hef reynt þetta dekk við mjög erfiðar aðstæður og þar kom það mér þægilega á óvart hversu gott grip það gaf þrátt fyrir fínt munstur.

Ef þú ert að leita að dekki með mjög góða endingu og gott grip á malbiki en minni torfæru eiginleikum þá mæli ég sterklega með þessu dekki.

Fást hjá Betragrip

 


 

Avon Distanzia

Silica blandað alhliða ferðahjóladekk með gríðarlega góðu gripi á jafnt blautu sem þurru malbiki.

Þokkalega rásfast á malarvegi og með ásættanlegu gripi við erfiðar aðstæður.

Distanzia er mjög vel heppnað dekk með þokkalega góða endingu.

Ég mæli með þessu dekki fyrir þá sem leggja áherslu á malbiksakstur en vilja hafa valið að fara yfir hálendið og komast léttari slóða.

Ég verð að benda á að einn stærsti galli Distanzia er að það tapar gripi hratt eftir að það er orðið hálf sltið, varð fyrir töluverðum vonbrigðum með dekkið þegar ég var farinn að missa grip eftir rúma 5000km án sýnilegrar ástæðu.

Fást hjá N1

 


 

 

mánudagur 6 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Laugardaginn 26. júní höldum við í Örnunum okkar árlega...
Fyrstu myndir af...
Hér birtist fyrsta myndin sem náðst hefur af sex strokka K1600LT hjólinu...
Við skipulagningu BMW dagsins hefur verið ákveðið að flýta...