AUGLÝSINGAR
Þeir sem vilja auglýsa þurfa að senda tölvupóst til vefstjóra sem sér um að setja auglýsinguna inn á vefinn. Eingöngu auglýsingar sem klárlega lúta að BMW mótorhjólamennsku. Ekkert gjald er tekið fyrir auglýsingarnar. Vefstjóri hefur óskorað vald til að hafna auglýsingum telji hann þær ekki sóma vefnum og / eða hagsmunum félagsmanna.
Við bjóðum BMW klúbbnum HEL Performance ryðfríar stálofnar bremsuslöngur á sérstöku klúbbtilboði
HEL Performance Bremsuslöngur
Öflugasti hluti mótorhjólsins er ekki vélin - það eru bremsurnar. Það er staðreynd. Suzuki GSXR1000 getur farið míluna á 10.8 sekúndum með endahraða yfir 200 km/klst.
Samt gera bremsurnar betur, stoppa hjólið á aðeins 6.8 sekúndum....
Öflugasti hluti hjólsins - Bremsurnar!!!
Málið er því ekki hve hratt kemstu, heldur hve hratt stopparðu, af öryggi.
Gerðu aksturinn öruggari!! Öflugari bremsur þýða meiri stjórn á ökutækinu, bæði í þurru og bleytu.
Það skiptir ekki máli hvaða mótorhjóli þú ekur, öll þurfa þau að stoppa.
Við íslenskar aðstæður, sérstaklega í bleytu, eru bremsurnar líflínan þín.
HEL Performance stálbremsuslöngur er hin fullkomna uppfærsla sem mun bæta bremsun til mikilla muna.
Vissi þú að flestir mótorhjólaframleiðendur mæla með nýjum bremsuslöngum á 3-5 ára fresti?
Losaðu þig við "svampkenndar" bremsur.
Gúmmíbremsuslöngur rýrna með tímanum og gefa eftir.
Slangan tútnar út við hemlun og aflið sem á að fara í bremsudælurnar minnkar verulega.
Nauðhemlunarhæfni hjólsins minnkar og í verstu tilfellum hverfur.
Tryggðu þér hemlunaröryggið á ný með HEL stálbremsuslöngum.
HEL stálbremsuslöngurnar eru stállitaðar með glæra PVC einangrun, en eru einnig fáanlegar í ellefu litum.
Einangrunin hlífir lakki og hlífum fyrir skemmdum.
Glært, gult, orange, rautt, fjólublátt, dökkfjólblátt, blátt, neon blátt, appelsínugult, svart, grænt eða karbon.
HEL stálslöngur eru einu stálslöngurnar fáanlegar með lituðum endum úr ryðfríu stáli.
Rauðir, grænir, bláir, svartir, fjólubláir og gulllitaðir endarnir auka öryggi, styrk og endingu
um leið og útlitið.
Tilboðsverð:
Ein slanga 4200 kr.
Tveggja slöngu sett 7650 kr
Þriggja slöngu sett 11476 kr
Fjögurra slöngu sett 15401 kr
Fimm slöngu sett 19127 kr
CBS sett (10 slöngu sett) 38254 kr
Innifalið í verði er PVC hlífðarkápa, Ryðfríir stálendar, Ryðfrítt stálofin slanga, ryðfríir banjo boltar, koparskinnur, ábyrgðarkort og límmiðar.
Haukur Hilmarsson
Krossgötur ehf
Fiskislóð 26
101 Reykjavík
tel: +354 5171077
fax: +354 5171078
Tilboð á smurolíum og síum til BMW félaga
BMW klúbbfélagar fá 10% afslátt af smurþjónustu og Purolator síum og 10% af öllum Shell vörum. Einnig 10% afsláttur af HEL stálbremsuslöngum og 10% afsláttur af öllu nema ökutækjum frá Triumph.
Samkvæmt bókinni eigum við á lager olíusíur í eftirfarandi BMW mótorhjól. Það sem vantar úr bókinni verður pantað strax.
650cc: R65 1985-88
750cc: K75 1985-92
800cc: R80 1984
R80G, R80S 1981
R80GS m olíkæli 1990
R80S 1981
R80ST 1983
1000cc: K1 1989-93
K100, LT, LS, RT 1983-93
R100PD 1990-91
R100RS 1986
R100RT með olíukæli 1976-84
R100RT 1986
1100cc: K1100, RS, LT 1990-93
R1100GS 1993-97
R1100R, RS og RT 1993-01
R1100S 2000-04
1150cc: R1150GS 2000-04
R1150R 2002-04
R1150RS 2003-04
T1150RT 2002-04
1200cc: K1200GT 2003-04
K1200LT 1999-04
K1200RS 1999-04
R1200C 2003-04
Framhaldsnámskeið í mótorhjólaakstri
Skráning er hafin á framhaldsnámskeið Aðalbrautar í mótorhjólaakstri. Boðið verður upp á tvenns konar námskeið: Götuakstur, og ferðalög á malarvegum.
1) Götuakstur. Skoðað hvernig hjólið hagar sér í beygjum og hvernig öfugstýringu er beytt til að ná sneggri viðbrögðum. Einnig er farið í æfingar til að bregðast við skyndilegri hættu með tvískiptum bremsuæfingum. Um er að ræða dagsnámskeið (6 kennslustundir) og kostar 18.000 kr. ef að nemandi mætir á eigin hjóli.
2) Ferðalög á malarvegum. Hér er skoðað hvað ber að varast og hvernig best er keyra við erfiðar aðstæður á fjallvegum. Skoðað er hvernig farangri er fyrirkomið, hvernig bremsað er á möl, hvernig ekið er í sandi, brekkum, vatni o.þ.h. Námskeiðið kostar 36.000 kr. ef nemandi mætir á eigin hjóli. Hægt er að hafa samband við Njál í síma 898-3223 eða senda Njáli tölvupóst með því að smella HÉR
BMW Hjólaþjónusta og Hjólahótel í Reykjavík.
Við erum komnir með einu aflestrartölvuna á landinu fyrir BMW mótorhjól. Við sérhæfum okkur í smur- og bremsuþjónustu, olíu og pakkdósa skiptum fyrir framdempara, sem og ýmsu öðru smáviðhaldi.
Viljum benda á að við tökum hjól í ástandsskoðun fyrir tímabilið.
Ef þess er óskað getum við útvegað flest alla varahluti. Orginal sem óorginal allt eftir óskum.
Nánari upplýsingar fást hjá Eyþóri í síma 6959421 eða á eythoro@gmail.com
Ný BMW F650 og 800GS hjól
Njáll og Eyþór eru búnir að fá gám með 12 BMW F650 og 800GS hjólum til landsins. Öll hjólin seldust strax. Pantaður hefur verinn annar gámur sem kemur í Júní. Þar eru enn eftir nokkur pláss ef einhver vill staðfesta sig fyrir mánaðarmót. Áhugasamir geta fengið allar gerðir BMW hjóla. Tekið er lágmarksgjald fyrir viðvikið . Hringið í Njál í síma 898-3223 eða Eyþór í síma 695-9421.
Aðstoðum við innflutning á nýjum BMW-hjólum frá umboði í Danmörku
Allar nánari upplýsingar hjá erling@norema.is og í síma 821-1100