Póstlisti
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá

 

ÞJÓNUSTA

Allar beiðnir um auglýsingar/tilkynningar skulu sendar til vefstjóra HÉR


Framhaldsnámskeið í mótorhjólaakstri

Skráning er hafin á framhaldsnámskeið Aðalbrautar í mótorhjólaakstri. Boðið verður upp á tvenns konar námskeið: Götuakstur, og ferðalög á malarvegum. Félagar í BMW mótorhjólaklúbbnum fá 20% afslátt af verðskrá.

1) Götuakstur. Skoðað hvernig hjólið hagar sér í beygjum og hvernig öfugstýringu er beytt til að ná sneggri viðbrögðum. Einnig er farið í æfingar til að bregðast við skyndilegri hættu með tvískiptum bremsuæfingum. Um er að ræða dagsnámskeið sem kostar 18.000 kr. ef að nemandi mætir á eigin hjóli. Næsta námskeið er fyrirhugað 26. apríl.

2) Ferðalög á malarvegum. Hér er skoðað hvað ber að varast og hvernig best er keyra við erfiðar aðstæður á fjallvegum. Skoðað er hvernig farangri er fyrirkomið, hvernig bremsað er á möl, hvernig ekið er í sandi, brekkum, vatni o.þ.h. Námskeiðið kostar 36.000 kr. ef nemandi mætir á eigin hjóli. Hægt er að hafa samband við Njál í síma 898-3223 eða senda Njáli tölvupóst með því að smella HÉR


BMW hjólaþjónusta í Reykjavík

Við erum komnir með einu aflestrartölvuna á landinu fyrir BMW mótorhjól. Við sérhæfum okkur í smur- og bremsuþjónustu, olíu og pakkdósa skiptum fyrir framdempara, sem og ýmsu öðru smáviðhaldi. 
Viljum benda á að við tökum hjól í ástandsskoðun fyrir tímabilið.
Ef þess er óskað getum við útvegað flest alla varahluti. Orginal sem óorginal allt eftir óskum.
Nánari upplýsingar fást hjá Eyþóri í síma 6959421 eða á eythoro@gmail.com


Aðstoðum við innflutning á BMW hjólum frá umboði

Við aðstoðum við innflutning á nýjum BMW hjólum frá Danmörku. Allar nánari upplýsingar hjá erling@norema.is og í síma 821-1100


mánudagur 6 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Laugardaginn 26. júní höldum við í Örnunum okkar árlega...
Fyrstu myndir af...
Hér birtist fyrsta myndin sem náðst hefur af sex strokka K1600LT hjólinu...
Við skipulagningu BMW dagsins hefur verið ákveðið að flýta...