2014

Þriðjudagsrúntar hefjast þann 22.apríl ef veður leyfir.

1.mai Hópkeyrsla með Sniglum mæting @ RMC klukkan 11.00

17.mai Landgræðsluferð í Mótorhjólaskóga mæting @ RMC klukkan 09.30

31.mai Ferð um Suðurnes í fylgd Grindjána mæting @ RMC klukkan 10.00

14.júní Afmælishátíð klúbbsins verður auglýst síðar.

27-29.júní Þakgilsferð mæting @ RMC klukkan 18.00

19-20.júlí Ferð um Kjöl og gist við Grettislaug mæting @ RMC klukkan 08.00

14-18.ágúst Vestfjarðartúr

Fimmtudaginn 14 ágúst kl 18:00. Lagt af stað frá RMC með fulla tanka og ekið  sem leið liggur um Borgarnes,Búðardal og yfir Þröskulda til Hólmavíkur. Þar verður gist næstu 4 nætur  (233 k m)

 

Föstudaginn 15 ágúst. Ekið norður yfir Steingrímsfjarðarheiði í Ísafjörð en þaðan er ekinn vegur 635 sem leið liggur að Kaldalóni og þangað sem vegurinn endar við Tyrðilsmýri og þaðan upp á Snæfjallaheiði og síðan til baka inn Ísafjörð yfir Kollafjarðarheiði ( F-66 ) til Kollafjarðar og þaðan austur Barðaströnd ( vegur 60 ) og yfir Þorskafjarðarheiði ( vegur 608 ) til Hólavíkur  ( 290 km )

 

Laugardaginn  16 ágúst. Ekið að Norðurfirði og þaðan til Ófeigsfjarðar þar til vegurinn endar. Ekið til baka suður Strandir um Trékillisvík, Gjögur, Djúpavík, Drangsnes til Hólmavíkur ( 280 km )

 

Sunnudaginn  17 ágúst . Ekið suður strandir  ( vegur 68 ) í Kollafjörð og yfir Steindalsheiði (vegur  690 ) í Gilsfjörð og þaðan vestur Skarðsströnd ( vegur 590 ) um Fellsströnd að Laugum norður Svínadal ( vegur 60 ) og yfir Gilsfjörð um Tröllatunguheiði til Hólmavíkur.  ( 280 km )

 

Mánudaginn  18 ágúst . Ekið suður strandir (vegur  68) í Hrútafjörð og yfir Haukadalsheiði (vegur  F 586) þaðan suður Bröttubrekku til Reykjavíkur. ( 290 km)

Allar upplýsingar veitir Einar Halldórsson formaður ferðanefndar  í síma 7774977

6.september Dagsferð um uppsveitir Rangárvallarsýslu mæting @ RMC klukkan 09.00

20.september Dagsferð til Vestmannaeyja mæting @ RMC klukkan 09.00

3.október Októberfest

Ferðanefndin