Aðalfundur BMW klúbbsins 2026

Aðalfundur BMW mótorhjólaklúbbsins á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 24. febrúar 2026 kl. 19:00 í húsnæði Fornbílaklúbbs Íslands Ögurvarfi 2

Mæting kl. 19:00 og aðalfundurinn sjálfur hefst klukkan kl. 19:30

Boðið verður uppá hamborgara og gos.

Dagskrá aðalfundar:

1. Formaður setur fundinn / kosning fundarstjóra og ritara.

2. Ritari fer yfir fundargerð síðasta aðalfundar.  

    —   Fundargerð síðasta aðalfundar er aðgengileg á vefsíðu klúbbsins: https://bmwhjol.is/klubburinn/adalfundargerdir/

3. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.

4. Skýrslur nefnda og umræður um þær.

5. Endurskoðaðir reikningar klúbbsins lagðir fram og umræður um þá.

6. Lagabreytingar ef einhverjar eru, en tillögur um breytingar á lögum félagsinns þurfa að berast stjórn 14. dögum fyrir aðalfund. 

7. Ákvörðun um árgjald, tillaga frá stjórn og umræður um hana.

8. Kosning stjórnar og nefnda.

9. Önnur mál

Það vantar alltaf góða menn í stjórn og nefndir klúbbsins.  Áhugasamir eru hvattir til að senda línu á bmwhjol@gmail.com.

Eftir aðalfund mun Flemming Madsen vera með myndasýningu frá ferðum sínum í Króatíu og Svartfjallalandi

Vinsamlegast leggið ekki bifreiðum fyrir framan veitingarstaðinn Skalla ! – Næg bílastæði fyrir aftan húsið.  

Kveðja 

-Stjórnin

Comments are closed.

Create a website or blog at WordPress.com

Up ↑