Sælir BMW mótorhjóla-félagar!
Nú styttist í sumarið og loksins hætt að snjóa. Þetta er því góður tími til að fara yfir nokkur grunnatrði mótorhjólaaksturs, fyrstu viðbrögð á slysstað og heyra svo af nýjustu tækni í leiðsögutækjum.
Við boðum því alla félagsmenn á fræðslukvöld næstkomandi þriðjudag 14. apríl kl. 19:00 í sal Fornbílaklúbbs Íslands Ögurhvarfi 2, Kópavogi. Dagskráin er þannig:
- Njáll Gunnlaugsson, ökukennari og mótorhjólamaður, flytur erindi um “Smart Riding”, sem er kennsluefni fyrir mótorhjólafólk og hvernig það getur hagað sér í umferðinni og úti á vegunum til að auka akstursöryggi og minnka slysahættu.
- Guðjón Guðjónsson, sjúkraflutninga- og slökkviliðsmaður, auk þess að vera leiðbeinandi í fyrstu hjálp og mótorthjólamaður, verður með erindi þar sem hann fer yfir helstu atrðin í fyrstu hjálp og hvað við þurfum að hafa í huga þegar við komum á slysstað.
- Heiðar Þór Guðnason, sérfræðingur í gagnavinnslu og tölvulausnum, félagsmaður og mikill áhugamaður um tækjabúnað mótorhjólamanna, fer yfir það nýjasta sem er í boði í leiðsögutækjum.
Gert er ráð fyrir að hvert erindi taki um 30 til 45 mínútur með stuttu kaffihléum á milli, þar sem verður upplagt tækifæri til að spjalla um ferðaplön sumarsins, skoðanakönnun um ferð erlendis og fleira.
Nú er um að gera að skella sér á fundinn og upplagt að menn taki með sér gest sem hefur gott af því að heyra um öryggismál mótorhjólamanna.
Kveðja
Sjtórn BMW Mótorhjólaklúbbsins á Íslandi

