BMW Motorrad Navigator VI

Þetta er í raun Garmin GPS tæki sem er sérstaklega framleiddur fyrir BMW hjól og getur því notað BMW Wonder Weel sem stjórntæki.
Hægt er að fá Navigator VI í nokkrum útgáfum og eru til útgáfur sem koma með City Navigator Europe korti og eru með lifetime uppfærslu leyfi á því. Einnig eru seldar útgáfur af Navigator VI sem sem eru án nokkurs korts en hægt er að kaupa sérstaklega City Navigator Europe kort hjá Garmin í þau tæki sem það fylgir ekki með.
Staðlaða City Navigator Europe kortið er almennt kort og vantar því á það Íslenska slóða, örnefni og annað þess háttar. (Current Europe Map Version: 2027.10)
Hægt er að kaupa sem viðbót í Navigator VI nákvæm kort af Íslandi með slóðum og fl. og bæta þeim við í tækið og má þar nefna;
GPSMAP.IS (https://gpsmap.is)
ÍSLANDSKORT 2026.11 fyrir Garmin 34,00$ (4.300 ísk)

Inniheldur leiðir sem hægt er að rúta eftir, heimilisfangaleit, áhugaverða staði, sprungur á jöklum, byggingar, flugvelli, fjöll, ár, göngustíga, hæðarlínur og fleira
Garmin búðinni https://garminbudin.is
Garmin Íslandskort 2025 – Rafræn útgáfa 14.900 ísk

Vektorkort af Íslandi með landlíkani og ýtarlegum upplýsingum fyrir Garmin tæki
Leiðsöguhæfir vegir og slóðar fyrir Garmin tæki. Yfir 40 þúsund örnefni.


You must be logged in to post a comment.