Home

Októberfest 2026

Októberfest verður haldið föstudagskvöldið 2. október kl. 20:00 stundvíslega á Höfninni Geirsgötu 7c. Dagskrá: Ræða óþekkta mótorhjólamannsins  Boðið verður upp á þýsk þema í mat og drykk að venju. Kostnaður per. félagsmann kr. 6.000 og gestir félagsmanna kr. 9.000 Nánari upplýsingar um skráningu er að finna í tölvupósti sem var sendur út 22 september. Skráning... Continue Reading →

1 Maí Hópkeyrsla 2026

Nú er komið að hinum árlega viðburði 1. maí hópkeyrsla Snigla, sem BMW‑klúbburinn hefur tekið þátt í síðustu ár. Þessi akstur minnir okkur á samstöðu bifhjólafólks og boðar sumarkomu. Mæting er kl. 10:00 að Síðumúla 19.Lagt verður af stað kl. 10:30 og ekið út á Granda.Endastöð er Álfabakki í Mjódd. Við hvetjum alla BMW‑eigendur til... Continue Reading →

Skoðunardagur á morgun

Skoðunardagur BMW er næsta laugardag 25. apríl. Næstkomandi laugardag á milli 10:00 og 13:00 er BMW skoðunardagurinn í Aðalskoðun Hafnarfirði.

Sumarið er komið – Fyrsti þriðjudagsrúnturinn.

Fyrsti þriðjudagsrúnturinn er í dag, þriðjudag 21 Apríl kl. 18:00.  Við ætlum að hittast á N1 í Ártúnsbrekku (á uppleið).   Þar verður ákveðið hvert skal halda, allt eftir veðri og vindum eins og gengur. Stórn BMW Mótorhjólaklúbbsins á Íslandi.

Félagsfundur þriðjudaginn 14 apríl kl. 19:00

Sælir BMW mótorhjóla-félagar! Nú styttist í sumarið og loksins hætt að snjóa.  Þetta er því góður tími til að fara yfir nokkur grunnatrði mótorhjólaaksturs, fyrstu viðbrögð á slysstað og heyra svo af nýjustu tækni í leiðsögutækjum. Við boðum því alla félagsmenn á fræðslukvöld næstkomandi þriðjudag 14. apríl kl. 19:00 í sal Fornbílaklúbbs Íslands Ögurhvarfi 2, Kópavogi.  Dagskráin... Continue Reading →

Create a website or blog at WordPress.com

Up ↑