Home

1 Maí Hópkeyrsla.

Síðustu sautján árin hefur klúbburinn tekið þátt í hópakstri Sniglanna þann 1.mai. Þessi akstur minnir okkur á samstöðu bifhjólafólks og boðar sumarkomu. Mæting er klukkan 10:30  að Síðumúla 19. Lagt verður af stað klukkan 11:00 og ekið útá Granda. Endastöð er Háskólinn í Reykjavik í Nauthólsvík.  Hvetjum alla BMW eigendur til að mæta.  Stjórnin

Félagsfundur 15. apríl 2025 kl. 20:00

Næsti félagsfundur verður haldinn á þriðjudaginn 15. apríl 2025 kl. 20:00  Staðsetning: Húsnæði Fornbílaklúbbs Íslands Ögurvarfi 2, Kópavogi. Dagskrá: Magnús Jónsson fyrrverandi Veðurstofustjóri kemur og kennir okkur að lesa í vind og veður.  Algengt er að útafkeyrslur og óhöpp megi rekja til sviptivinda. Ennfremur kemur Eisi umboðsmaður BMW með fróðlegar upplýsingar um undirbúning og viðhald... Continue Reading →

Ferðir sumarsins – 11. mars 2025 kl. 20:00

Ferðanefnd verður með fund þar sem helstu ferðir sumarsinns verða kynntar þann 11. mars. 2025 kl. 20:00 í húsnæði Fornbílaklúbbs Íslands Ögurvarfi 2. Vinsamlegast leggið ekki bifreiðum fyrir framan veitingarstaðinn Skalla ! Næg bílastæði fyrir aftan húsið.   Kveðja Ferðanefnd og stjórn

Create a website or blog at WordPress.com

Up ↑