Næsti félagsfundur verður haldinn á þriðjudaginn 15. apríl 2025 kl. 20:00 Staðsetning: Húsnæði Fornbílaklúbbs Íslands Ögurvarfi 2, Kópavogi. Dagskrá: Magnús Jónsson fyrrverandi Veðurstofustjóri kemur og kennir okkur að lesa í vind og veður. Algengt er að útafkeyrslur og óhöpp megi rekja til sviptivinda. Ennfremur kemur Eisi umboðsmaður BMW með fróðlegar upplýsingar um undirbúning og viðhald... Continue Reading →
Home
Ferðir sumarsins – 11. mars 2025 kl. 20:00
Ferðanefnd verður með fund þar sem helstu ferðir sumarsinns verða kynntar þann 11. mars. 2025 kl. 20:00 í húsnæði Fornbílaklúbbs Íslands Ögurvarfi 2. Vinsamlegast leggið ekki bifreiðum fyrir framan veitingarstaðinn Skalla ! Næg bílastæði fyrir aftan húsið. Kveðja Ferðanefnd og stjórn
Félagar, Hamborgarar og Gos annað kvöld 18 febrúar…
..kl 19 í húsnæði Fornbílaklúbbs Íslands Ögurvarfi 2 Photo by Valeria Boltneva on Pexels.com í kjölfarið verður Aðalfundur (sjá eldri frétt.) Stjórnin
Aðalfundur 2025 – 18. febrúar kl. 19:00
Aðalfundur BMW mótorhjólaklúbbsins á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 18. febrúar 2025 kl. 19:00 í húsnæði Fornbílaklúbbs Íslands Ögurvarfi 2 Mæting kl. 19:00 og aðalfundurinn sjálfur hefst klukkan 19:30 Boðið verður uppá hamborgara og gos. Dagskrá aðalfundar: 1. Formaður setur fundinn / kosning fundarstjóra og ritara. 2. Ritari fer yfir fundargerð síðasta aðalfundar. Fundargerð síðasta aðalfundar er... Continue Reading →


You must be logged in to post a comment.