Aðalfundur BMW mótorhjólaklúbbsins á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 18. febrúar 2020, kl 20:00 að Fiskislóð 45N. Dagskrá fundarins: 1. Formaður setur fundinn / kosning fundarstjóra og ritara. 2. Ritari les aðalfundargerð síðasta aðalfundar. 3. Skýrsla stjórnar og umræður um hana. 4. Skýrslur nefnda og umræður um þær. 5. Endurskoðaðir reikningar klúbbsins lagðir fram og umræður... Continue Reading →
Fundur – Íran og litla Asía, ferðasaga
Næstkomandi þriðjudag, 28. janúar verður haldinn fundur þar sem Guðmundur Ragnarsson og Örn Svavarsson segja frá 7 vikna ferðalagi sínu til Írans og litlu Asíu í máli og myndum. Fundurinn verður haldinn að Fiskislóð 45N og hefst kl 20:00 Vonumst til að sjá sem flesta. -Stjórnin
Nýárskveðja frá BMW Mótorhjólaklúbbnum
BMW Mótorhjólaklúbburinn á Íslandi sendir sínar bestu nýárskveðjur með von um frábært hjólaár 2020.
Dagsferð laugardaginn 20. júlí
Laugardaginn 20. júlí n.k. verður farin dagsferð. Ekið verður inn í Hvalfjörð, yfir Dragháls og í Skorradal. Þaðan verður ekið eftir línuvegi upp á Uxahryggi, framhjá Skjaldbreiði og niður Haukadal að Geysi. Á Geysi tökum við svo stöðuna og ákveðum einhverja skemmtilega leið heim. Brottför frá N1 Mosfellsbæ kl 9:00 Vestmannayjaferð sem fyrirhuguð var á... Continue Reading →
BMW Öryggis- og akstursnámskeið
Næstkomandi þriðjudag, 28. maí verður haldið öryggis- og akstursnámskeið á vegum BMW Mótorhjólaklúbbsins. Mæting á bílaplanið við Skarfabakka klukkan 18:30 Námskeiðið fer fram á malbikuðu svæði á bílastæðinu við Skarfabakka þar sem farið verður meðal annars yfir eftirfarandi atriði: -Almenn öryggismál og hópakstur á þjóðvegum -Æfingaakstur og beygjutækni á malbiki -Bremsutækni -Ýmis tæknileg atriði varðandi... Continue Reading →


You must be logged in to post a comment.