1. maí akstur mótorhjólafólks á Íslandi. Mæting í Nesradíó, Síðumúla 19 klukkan 11:00 Brottför frá Síðumúla kl 12:00 - Ökum saman niður á Laugaveg þar sem hjólalestin mun svo leggja af stað kl 12:30 og aka eftir merktri leið og enda á bílastæðinu við Bauhaus um kl 13:00. Vonumst til að sjá sem flesta.
Ferðasaga Guðmundar Bjarnasonar – II. hluti
Almennur félagsfundur verður haldinn næstkomandi þriðjudag, 16. apríl kl 20:00 að Fiskislóð 45N Gestur fundarins verður Guðmundur Bjarnason sem mun segja okkur heimsreisu-ferðasögu sína í máli og myndum. Vonumst til þess að sjá sem flesta félaga. -Stjórnin
Námskeið í notkun farsíma sem leiðsögutækja
Þriðjudaginn 26. mars kl 20:00 að Fiskislóð 45N verður haldið námskeið í notkun farsíma sem leiðsögutækis. Kristján Gíslason hringfari mun fara yfir ýmis atriði er varða notkun Google Maps og Maps.Me í farsíma til leiðsagnar. Fyrir áhugasama er hægt að finna þessi smáforrit inni á Google Play fyrir Android eða inni á App Store fyrir iPhone.
Ferðaplan 2019
Ferðanefnd BMW Mótorhjólaklúbbsins hélt kynningarfund um ferðir sumarsins 2019. Fundurinn var mjög vel sóttur en alls mættu um 40 félagsmenn til fundarins. Nýju BMW GS 1250 hjólin voru til sýnis fyrir utan fundarstaðinn. Ferðaplan sumarsins má finna hér
Aðalfundarboð
Aðalfundur BMW mótorhjólaklúbbsins á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 19. febrúar n.k. kl 19:00 að Fiskislóð 45N. Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar. Vonumst til þess að sjá sem flesta. - Stjórnin


You must be logged in to post a comment.