Ferðanefnd BMW Mótorhjólaklúbbsins hélt kynningarfund um ferðir sumarsins 2019. Fundurinn var mjög vel sóttur en alls mættu um 40 félagsmenn til fundarins. Nýju BMW GS 1250 hjólin voru til sýnis fyrir utan fundarstaðinn. Ferðaplan sumarsins má finna hér
Home
Aðalfundarboð
Aðalfundur BMW mótorhjólaklúbbsins á Íslandi verður haldinn þriðjudaginn 19. febrúar n.k. kl 19:00 að Fiskislóð 45N. Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar. Vonumst til þess að sjá sem flesta. - Stjórnin
Ferðasaga Guðmundar Bjarnasonar
Almennur félagsfundur verður haldinn næstkomandi þriðjudag, 5. febrúar kl 20:00 að Fiskislóð 45N Gestur fundarins verður Guðmundur Bjarnason sem mun segja okkur heimsreisu-ferðasögu sína í máli og myndum. Vonumst til þess að sjá sem flesta félaga. -Stjórnin
Jólakveðja frá BMW mótorhjólaklúbbnum
BMW Mótorhjólaklúbburinn á Íslandi sendir öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi hjólaár.
Ferð á Strandir 15.- 16. september 2018
Fyrirhuguð er ferð klúbbsins á Strandir dagana 15.- 16. september 2018. Ferðatilhögun: -Laugardagurinn 15. september Brottför frá N1 Mosfellsbæ kl 9:00 Ekið sem leið liggur til Norðurfjarðar á Ströndum. -Sunnudagurinn 16. september Heimferð Þeir sem hafa hug á að fara í ferðina er beðnir um að tilkynna þátttöku með því að tolvupóst á bmwhjol(at)gmail.com sem allra... Continue Reading →


You must be logged in to post a comment.