BMW Mótorhjólaklúbburinn á Íslandi óskar öllum félagsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Beztu þakkir fyrir ánægjulegar stundir á árinu sem er að líða. Megi nýtt ár færa okkur öllum fulla ferð áfram og hæfilegar bremsur. -Stjórnin
Jólafundur BMW Mótorhjólaklúbbsins
Hinn árlegi jólafundur BMW Motorhjólaklúbbsins á Íslandi verður haldinn næstkomandi föstudag 8. desember milli kl 17 og 19 í húsakynnum RMC að Bolholti 4. RMC verður með kynningu á 2018 árgerðum af BMW hjólum. Léttar veitingar verða í boði klúbbsins. Allir klúbbfélagar hjartanlega velkomnir.
Fundur vegna Marokkóferðar – Laugardaginn 18.nóvember kl 12:00
Sælir félagar. Fundur vegna fyrirhugaðrar Marokkóferðar verður haldinn laugardaginn 18. nóvember kl 12:00 hjá RMC að Bolholti 4. Mikilvægt er að þeir sem eru ákveðnir að fara í ferðina og hafa skráð sig til þátttöku mæti á fundinn, þar sem að á fundinum verður gengið endanlega frá skráningu til ferðaskrifstofunnar sem sér um ferðina. Einnig... Continue Reading →
Kynningarfundur vegna Marokkóferðar
BMW GS Club International klúbburinn sem kom með okkur í stóru ferðina stendur fyrir mótorhjólaferð til Marokkó í apríl á næsta ári og áhugasömum meðlimum í okkar BMW klúbbi stendur til boða að slást í för með þeim. Haldinn verður kynningarfundur vegna ferðarinnar þriðjudaginn 7. nóvember í húsakynnum RMC að Bolholti 4. Fundurinn hefst kl... Continue Reading →
Þriðjudagsrúntur breytist í fimmtudagsrúnt
Farið verður upp í Hálendismiðstöðina í Hrauneyjum og heilsað upp á þýska hópinn sem áætlar að koma suður Sprengisand seinni part fimmtudags. Brottför frá RMC fimmtudaginn 24. ágúst kl 18:00 Áætluð heimkoma um miðnættið. Frábær veðurspá framundan. Vegalengdin frá Reykjavík í Hrauneyjar er u.þ.b. 150 km. ef farið um Þjórsárdal, malbik alla leið. Tilvalið að... Continue Reading →
BMW GS Club International e.V. kominn til landsins
26 félagsmenn úr þýska BMW GS Club International er komnir til landsins. Ætlunin er að ferðast vítt og breitt um Ísland í 2 vikur. Dagana 17. til 20. ágúst munu þeir svo slást í för með BMW Mótorhjólaklúbbnum á Íslandi þar sem Vestfjarðahringurinn verður farinn. Hóparnir hittast á Búðardal á fimmtdagsmorgun og ekið verður... Continue Reading →
Skilaboð frá RMC
Fyrir stuttu fengum við hjá RMC þær leiðinlegu upplýsingar frá BMW að innkalla öll R1200GS og GS Adventure af árgerðum 2013-2017 vegna galla í framdempurum. Á sama tíma var okkur gert að setja sölubann á ný BMW R1200GS og GS Adventure fram að viðgerð. Við tökum þessa innköllun mjög alvarlega þar sem við erum nokkuð... Continue Reading →
Stóra ferðin 2017 – með BMW GS Klúbbi frá Munchen
Senn líður að stóru ferðinni 2017 en hún verður farin dagana 17. - 20. ágúst. BMW GS Club International eru að koma frá Þýskalandi og ferðast um Ísland dagana 12. - 27. ágúst. Það eru 27 manns á 25 BMW mótorhjólum. Þýski klúbburinn ætlar að slást í hópinn með BMW Mótorhjólaklúbbnum á Íslandi í stóru... Continue Reading →
Dagsferð um Vesturland
Félagar úr BMW Mótorhjólaklúbbnum fóru í dagsferð um Vesturlandið síðastlðinn laugardag. EKið var að Þingvöllum og þaðan upp Uxahryggi og Kaldadal til Húsafells. Þegar þangað var komið var mönnum boðið í kaffi til Helga Eiríkssonar sem jafnan er kenndur við Lumex, en hann hefur af myndarskap staðið að uppbyggingu og framkvæmdum á jörð sinni, Kolsstöðum... Continue Reading →
Þakgil 2017
Þakgilsferðin var farin helgina 30. júní - 2. júlí. Alls voru um 10 félagar skráðir til leiks. Ferðin hófst á föstudeginum þar sem safnast var saman við RMC og lagt af stað kl 18:00. Ekið var eftir þjóðvegi til til Víkur í Mýrdal þar sem kvöldmatur var snæddur á veitingastaðnum Syðri-Vík. Síðan var ekið sem... Continue Reading →



You must be logged in to post a comment.